12. júní 2005

Sikileyskt lasagna

Annað loforð efnt. Þetta er eggaldinlasagna, algerlega kjötlaust, gott fyrir kanínurnar á listanum...

1-2 meðalstór eggaldin
lasagnablöð eftir þörfum
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 lítil dós tómatkraftur (puré)
1 laukur, smátt saxaður
fullt af fersku basil (basili? basli?)
salt og pipar eftir smekk
150 g mozzarella (nota nú bara oftast gouda eða brauðost)
smá ólífuolía.

Byrjið á því að meðhöndla eggaldinin. Það sem ég geri er að ég sker þau í sneiðar, legg í fat og salta vel yfir. Læt í ísskáp í klukkutíma eða svo, saltið dregur vökva úr eggaldininu. Síðan skolar maður þau vel og þerrar. Stundum baka ég sneiðarnar í ofni í svona kortér, bara smyr bökunarpappír með olíunni og legg sneiðarnar á. Hiti 200 gráður. (Þetta er svolítið vesen en þetta verður allt annar matur. Ég hef margprófað að nenna þessu ekki og nota eggaldinin beint en verð alltaf fyrir sömu vonbrigðunum) Það þarf ekki að salta réttinn meira, þetta verður alveg passlega salt með því að skola vel og þerra. (hef hins vegar frétt + get ímyndað mér að þetta verði algerlega óætt ef sneiðarnar eru ekki skolaðar...)

Steikið lauk í olíu þar til gullinn, bætið síðan tómatdósunum + kraftinum út á pönnuna og kryddið eftir smekk (ekki salta). Má sjóða aðeins niður.

Raðið síðan saman lögum af sósu, eggaldini, lasagnablöðum og osti. Fallegast að enda á ostinum. Bakist við 200° í 40-50 mínútur. Gott að bera fram með góðu brauði og nýrifnum parmaosti.

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég staðfesti að það þarf að muna að skola!
Og ætla að prófa þetta á tengdamömmu á morgun.
Takk, Parísardaman.

Hildigunnur sagði...

ekki málið :-)

láttu vita hvernig líkaði.

Nafnlaus sagði...

Þetta er dásamlega gott. Ætla að hafa meiri ost næst. Tengdamamma var í skýjunum. Parisardaman.

Hildigunnur sagði...

jamm, meiri ostur er ALLTAF betra ;-)

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Nafnlaus sagði...

GOUDAOSTUR Í SIKILEYSKT LASAGNA!!!
BRAUÐOSTUR Í SIKILEYSKT LASAGNA!!!

HILDIGUNNUR!!! SKAMM!!!

Hildigunnur sagði...

jú, en ghh, íslenska mozzarellan er bara gúmmí...

Nafnlaus sagði...

MOZZARELLA!!!

RICOTTA!!!

hér með viðurkennist að ég er haldinn matarsnobbi af hæstu gráðu ...

Hildigunnur sagði...

hmmm, það var nú mozzarella í uppskriftinni upprunalega, og mér finnst ricotta vondur. Þannig að ætli ég haldi mér ekki bara við matarblasphemyið. Þykist reyndar vera matarsnobbari samt...