20. október 2004

Þessi er ekkert sma goður

fengum hann í matarboði hjá vinkonu um daginn:

Hvítlaukskjúklingur Olgu

Kjúklingur (heill eða bringur)
Garlic chili sauce
1 laukur
l dós ólífur
lárviðarlauf
rjómi
2 heilir hvítlaukar
fullt af rauðvíni eða koníaki

basilikum, paprikuduft, pipar, salt, season all og lemon pipar

kjúklingur steiktur á pönnu og kryddaður upp úr olíu og smjöri. Sett í eldfast mót. Hvítlaukur og laukur skornir í bita og brúnaðir á pönnu, rjóma, lárviðarlauf og olívur og rjómi og garlic chili sause hellt út í. Rauðvíni hellt út í aðeins hitað hellt yfir kjúklinginn og bakað í ca: 45 mín - 1 klst.

Með þessu borið fram kartöflubátar, má þó gjarnan vera hrísgrjón, og gott salat með rucola og avocado

2 ummæli:

Hallveig sagði...

hvort voru grænar eða svartar ólífur í réttinum? manstu það?

Hildigunnur sagði...

nei ómögulega, ég held ég myndi nota grænar.