4. apríl 2009

Kúrbítsmakkarónur

Þetta er mjög gott og tekur ekki langan tíma að matreiða.

2 litlir kúrbítar
4 hvítlauksrif
olía
salt
pipar
parmesanostur

makkarónur (ekki svona litlar og fljótsoðnar sem maður setur í typpasúpu, heldur stórar og feitar)

Ég byrjaði á því að setja vatn í pott til að sjóða pastað í.

Maður rífur kúrbítinn með rifjárni. Það er gott að leggja nokkur lög af eldhúspappír undir, pappírinn dregur í sig safann úr kúrbítunum. Svo hitar maður olíu í pönnu (u.þ.b. botnfylli) og steikir hvítlaukinn á meðalháum hita í smá stund (þangað til að hann byrjar að verða brúnn) og setur kúrbítinn á pönnuna. Ég bætti smá olíu við og lét þetta krauma á háum hita til að byrja með en svo meðalháum meðan ég sauð makkarónurnar. Salta og pipra.

Þegar makkarónurnar eru soðnar hellir maður vatninu af og blandar gumsinu saman við, ásamt u.þ.b. 2/3 bolla af parmesanosti. Svo hrærir maður duglega svo osturinn bráðni.

4 ummæli:

Unknown sagði...

Elska þessa síðu! Frábært að sjá að þið eruð enn þá að bæta við hana :)

Nafnlaus sagði...

Hljómar vel. Hvernig stórar og feitar makkarónur? Má ég nota kreppuskrúfurnar mínar?

krummi sagði...

Æ, ég meina bara svona bogið penne, ekki fljótsoðnar makkarónur. Annars má nú nota hvaða pasta sem er. Það var spagettí í upprunalegu uppskriftinni.

Unknown sagði...

Palmi eldadi i gaer. Voda gott, hvitlaukur kannski steiktur adeins of lengi. Fekk svipad pasta i heimahusi a Italiu nema tha voru tomatar lika med. Thad er abyggilega lika gott ad baeta theim vid :)
Meira sona, fljotlegt og gott!